30.12.2008 | 01:05
Viktoría = kjáni.
jáá þetta er orðin staðreynd. Þetta er ekki lengur spurning : er viktoría kjáni? nei þetta er meira svona fullyrðing : Viktoría er kjáni!
tökum dæmi frá deginum í dag: Ég vaknaði óvart klukkan sjö.. allt í lagi með það ég fór bara að horfa á bíómyndir. tókst að klára tvær fyrir hádegi! síðan eyddi ég restinni af deginum í tjill og tiltekt. Fór í bæinn því ég átti að mæta uppí vinnu í talningu klukkan hálf níu. Flott mál. Eg mætti eldhress.. smá sein samt.. stóð fyrir utan búðina og sá að enginn var mættur. Ég eins og asni hringdi í verslunarstjórann og spurði hvenær talninginn átti að vera.. og þá VAR hún víst hálf níu um morguninn!
Annað dæmi: ég var að skúra um daginn. Sótti mér vatn í baðkarið, en í stað þess að skrúfa fyrir.. skrúfaði ég frá sturtuhausnum sem vildi svo skemmtilega til að hann var staðsettur beint fyrir ofan hausinn á mér.
fyrir nokkrum dögum: var ég í buzz. og það kom spurning: Who is the man behind the micorsoft empire. Í stað þess að ég hugsaði rökrétt og svaraði Bill Gates eins og hinir.. þá fór ég að ýminda mér kall sem stæði í sínu "empire" og væri veifandi. Ég varð svo pirruð því það kom enginn mynd af kalli að ég svaraði bara einhverju og þar af leiðandi vitlausu svari.
Fyrir jól: Hrönn bað mig um að kaupa frímerki. Jú ekkert mál ég gat alveg gert það :) svo lætur hún mig fá 13 jólakort. Ég fer í smáralindina, set kortin í póstkassan og kaupi svo 20 frímerki! Það var ekki fyrr en ég kom heim að Hrönn benti mér á að ég átti víst að setja frímerkin á jólakortin..
Þetta eru nokkur dæmi sem sanna það að ég er óttalegur kjánabangsi!
- Viktoría kjáni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.12.2008 | 14:46
Til hmingju með afmælið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.12.2008 | 11:30
Sælar systur og fleiri sem lesa
Hæhæ
Af mér er allt gott að frétta. Ég var að fá einkunnirnar mínar í gær og eru þær svohljóðandi:
Enska: 9
Íslenska: 9
Kvikmyndafræði: 9
Íþróttir: Staðist
Landafræði: 8
Spænska: 8
Uppeldisfræði: 10
Samtals eru þetta 19 einingar sem ég fékk og er ég þá búin með 97 einingar.
Geiri var svo einnig að fá einkunnirnar sínar en þær eru svona:
Íslenska: 6
Danska: 6
Íþróttir: 7
Nám: Staðist
Stu: Staðist
Hann féll síðan í stærðfræði, félagsfræði og heimspeki. En þetta voru 9 einingar sem hann fékk og er hann búinn með 50 einingar allt í allt.
En núna erum við í jólafrí og njótum þess með því að sofa fram á hádegi alla daga . En þessi jól ætlum við að vera í Kópavoginum, við tókum þá sameiginlegu ákvörðun að skiptast á að vera í Kópavoginum og á Bakka.
Annars er ekkert annað að frétta, nema auðvitað að við erum búin að trúlofa okkur en ég held að flest allir viti það nú þegar. Síðan erum við bara að krossleggja putta að við fáum einhverja vinnu í sumar, það er ráðningarbann í Orkuveitunni og svo var ég að heyra að það er einnig ráðningarbann á leikskólum. En það kemur bara í ljós.
Kv. Gróa Rán
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.12.2008 | 13:59
Írabakka fréttir - haustblogg
Sæl öll sömul
Þá held ég að það sé komin tími á fréttir úr Írabakka. Þar hafa verið smá breytingar á íbúum eins og flestir vita. Gunnar fluttur út og erum við mæðgur orðnar 2 aftur. (Ja eða eigum við að segja 3 því að Viktoríu líður mjög vel hjá okkur í stærra herbergi og með stærra rúm en heima hjá sér og er því mjög mikið hérna).
Nóvember mánuður gekk í garð með aðlögun að nýjum aðstæðum og AFMÆLI heimasætunnar. (Ég ætlaði nú fyrir löngu að vera búin að skella inn myndum en þurfti að fara margar krókaleiðir til að vista þær á blogginu, það var svo um helgina sem ég fattaði mun einfaldari leið, þannig að nú er ég búin að setja inn fullt af myndum). Ásthildur tók virkan þátt í afmælisundirbúningnum m.a sá um baksturinn ásamt mömmu sinni .
16 nóvember var 7 ára afmæli sem lengi var búið að bíða eftir.
OG var það glöð stelpa sem vaknaði um morguninn og tók upp pakka sem meðal annars innihélt bókina Fíu sól.
Enda er Ásthildur algjör lestrarhestur sem og námshestur. Enda hefur hún ekki langt að sækja lestraráhugann og passar nafnið vel við í því tilviki.
Hún keppti í sínu fyrsta sundmóti dagin fyrir 7 ára afmælið og gekk það mjög vel. Hún ætlar svo að keppa á fleiri mótum eftir áramót og vonandi man þá mamman að kippa myndavélinni með.
Í lok nóvember bökuðum við svo piparkökur upp á Bakka ásamt fjölda af fólki
og voru stelpubarnabörnin 3 (Þórhalla fékk bara að horfa á í þetta sinn) með mjög gott úthald, en allir bæði strákar og stelpur voru mjög dugleg.
Í nóvember og desember höfum við svo fengið að passa Þórhöllu Guðnýju og gengur það mjög vel (hún lætur nú oft heyra vel í sér en nágrannarnir hafa ekki enn bankað upp á - nema þessir úr kóngsbakkanum sem eiga oft leið hjá ef maður er með lítið kríli í heimsókn). Ásthildur er orðin ansi flink í barnapössuninni og hér er hún að skipta á Þórhöllu Guðnýju.
EN ég bið ða heilsa í bili og skora á fleiri systur að hafa hreyfingu á bloggsíðunni
kv. Hrönn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.12.2008 | 11:12
líffræðilærdómur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.12.2008 | 11:05
ÞGD og BRG.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.11.2008 | 08:42
TIl hamingju með afmælið =)
TIL HAMINGJU MEÐ 28 ÁRA AFMÆLIÐ!
Eigðu frábæran afmælisdag .
Kv. Gróa Rán og Geiri
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.11.2008 | 16:00
fréttir af mér..
Hæhæ :)Af mér er svo sem allt gott að frétta.. jólaprófin fara skella á og er alveg endalaust mikið að gera í skólanum.. Kennarar demba á mann prófum og verkefnum eins og hellt væri úr fötu! en það er bara ein skólavika eftir og svo próf.. þannig að það þýðir ekkert nema að þrauka og stimpla GÆS á ennið á sér. (GÆS=ég get ég ætla ég skal)
Ég fór í jarðfræðiferð til Vestmannaeyja mánudaginn var. Held að þetta hafi verið mínar verstu sjóferðir! tók alveg sinn tíma að jafna sig af sjóveikinni.. spurning að panta flug fyrir næstu þjóðhátíð ?
rosa dugleg að læra líffræði!
Á morgun liggur svo leið mín norður á Akureyri. Planið er að fara á tvær leiksýningar, hitta leikfélag MA og skella sér svo á Sjallan þar sem Páll Óskar mun halda uppi fjörinu!
En jæja þýðir ekkert að slóra.. líffræðin kallar á mig!
- Viktoría
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2008 | 19:43
ÞGD á barnalandi.
Hæhæ.
Við erum búin að búa til barnalandssíðu handa Þórhöllu Guðnýju þar sem hægt er að skoða myndir af henni.
thorhalla.barnaland.is
kv. Halla, Daníel og Þórhalla Guðný
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2008 | 10:14
Afmæliskveðja!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)