Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Skólinn búinn...

Jæja þá er skólinn loksins búinn...bara prófin eftir :)   ég er í sjö áföngum, en náði símati í tveimur sögu og stærðfræði, þannig að ég fer í 5 próf.  Ég er búin að taka lokapróf í leiklist...og gekk það bara vel :)   næsti leiklistaráfangi verður roslalega krefjandi, enda er ég komin frekar langt í leiklistinni. Aðalmálið í næsta áfanga er samt London-ferðin sem farin verður síðustu helgina í febrúar :D  ætlum við að skoða leiklistarskóla, fara í leikhús og svo auðvitað versla :D 
Annars er ég bara bjartsýn á prófin, held að ég nái öllu saman...eða ég vona það allavega :) Það er líka rosalegur munur að vera með bílpróf og geta bara keyrt sjálf í og úr prófunum. 

en ég ætla halda áfram að vera dugleg..

Viktoría


hæ Ég og Birna Rún vorum lesin í 24 stundum og það kom einn nautkálfur í heiminn.

Kveðja Guðni Kristinn

ps. það má sjá greinina á bls. 6 í 24 stundum.


Jörfabakkinn seldur

Sælar

Þá fer að styttast dagarnir sem ég á 2 íbúðir. Jörfabakkinn seldist í dag.. nú þarf ég bara að þrífa hann og skrifa undir kaupsamning, skila af mér formannstitlinum í stigaganginum og þá er ég laus LoL

 

Kv. Hrönn

 


27 ára afmæliðbarn

Til hamingju með afmælið elsku Dröfn. Vonandi áttirðu æðsilegan afmælisdag

kv. Viktoría og hinar systurnar.

p.s. ég gat því miður ekki sett inn mynd af þér, á eftir að læra það.


6 Ára afmælisbarn

Til hamingju með afmælið Ásthildur mín

 

DSC02499 Kveðja Mamma


jólagjafalisti

þar sem ég var að setja jóla diskinn með Gunna og Felix inná tölvunna mína, og fór að hlusta á jólagjafalistann sem þeir syngja, þá kom ég með smá hugmyndir um það sem mig langar í jólagjöf =)

- Fartölvutösku (bakboka)
- húfu og vettlinga
- ilmvatn
- augnskugga
- gollu (svarta)
- Skartgripi
- Hairspray
- nýja diskinn með Poetrix (held að hann veri kominn úr fyrir jól)
- Becoming Jane á DVD

Man ekki meira í augnablikinu..

Viktoría


BÍLPRÓF!

Vildi bara vekja athygli á því að ég er komin með bílpróf :D

 

Viktoría 


Sælar systur og fleiri sem lesa

Það er nú ekki mikið að frétta af mér. Styttist í jólaprófinn og þess vegna er allt á fullu í skólanum. Ég er byrjuð á námskeiði í Dans-Jóga sem er mjög skemmtilegt, er einu sinni í viku út nóvember. Geiri er bara að vinna á fullu í Orkuveitunni, núna er hann ekki í brunahönunum heldur er hann að mála. Anna Rósa og Kiddi, foreldrar Geira, eru að fara til útlanda í 20 daga þannig að ég og Geiri ætlum að byrja að búa saman í 20 daga, spurning hvernig það gengur Wink. En annars verð ég komin í jólafrí 12. desember en byrja síðan að vinna í Osta- og smjörsölunni 13. des þannig að þetta verður ekki langt jólafrí hjá mér og það er möguleiki að ég missi af systraferðinni Frown.

En þetta er orðið gott í bili

Kv. Gróa Rán


Helgarfrí

jæja þá er loksins komin helgi =) það er búið að vera brjálað að gera hjá mér í þessari viku. Það var 60's vika í skólanum og endaði það með 60's balli í gær.
Planið er að vera heima um helgina...svona til tilbreytingar. Þarf líka að taka til í herberginu mínu og læra.

Ég er komin með tölvu eins og flestir vita. Og sitjum eg og Halla ótrúlega töff, báðar í nýjum apple tölvum.

Á miðvikudaginn náði ég loksins bóklega bílprófinu. Samt þegar ég skilaði inn prófinu sagði prófdómarinn að ég hafði falli. Ég fór í algjörum bömmer yfir prófið og tók þá eftir því að hann hafði gefið mér villu fyrir rétt svar. Þannig að ég fór til baka með athugasemd um þetta, og komst þá að því að hann fór yfir mitt próf með vitlausu prófi. Þannig að ég náði með 2 og 3 villum =) á svo eftir að heyra aftur í ökukennaranum til að panta verklega.

En ég segi þetta nóg í bili =)

 Viktoría


Næsta síða »

Höfundur

Bakkasystur
Bakkasystur
Systurnar sex og fylgilið....
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband