Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Til hamingju!

Til hamingju með daginn Bára og Hrönn. Vonandi eigið þið æðislegan afmælisdag Smile

n1322944732_220668_8595  n1378303528_1141409_7556


Leikfélag Mosfellsbæjar kynnir söngleikinn:

Töfrataskan!

           

Frumsýning

laugardaginn 21. febrúar kl. 14

Önnur sýning
laugardaginn 21. febrúar kl. 16

Þriðja sýning
laugardaginn 28. febrúar kl. 14

Fjórða sýning

laugardaginn 28. febrúar kl. 16 

 

Í söngleiknum kynnast áhorfendur hinum ýmsu ævintýrapersónum eins og Mary Poppins, konungi ljónanna, litlu hafmeyjunni, Aladdin, Móglí og Fríðu.

Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!


 

Miðapantanir í síma 566-7788

 

 

 Fríða og dýriðKonungur ljónannaAlladín

 

 

 

litla hafmeyjanMary poppins

 

MóglíSíamskettirnir

Til hamingju með afmælið Daníel

Til lukku með daginn og árin 21.

 

kveðja Hrönn og Ásthildur


sunnudagur til sælu =)

Hæhæ

 Héðan úr Kópavoginum er allt fínt að frétta. Geiri var að taka þátt í söngvakeppni á fimmtudaginn og vann ekki, enda meira gert upp á grínið en í alvöru Wink. Hann er einnig búinn að vera á talsetningarnámskeiði sem honum finnst rosa skemmtilegt.

Við erum svo bæði á fullu í skólanum og gengur bara vel hjá okkur báðum, ég þarf reyndar að vera aðeins strangari í sambandi við andlitsbókina, gleymi mér aðeins of oft þar inn á þegar ég á að vera að fylgjast með í tímum Happy. En ég og Geiri erum búin að vakna kl. 5 síðastliðna morgna og bera út fréttablaðið og hefur það gengið mjög vel fyrir utan síðasta laugardag en þá var svo mikil hálka að ég rann tvisvar á rassinn GetLost.

Í gær fórum við svo út að borða á Caruso í tilefni Valentínusardagsins og gaf Geiri mér mjög fallegt hálsmen en ég gaf honum vasapela Tounge.

Ég var svo að skrá mig sem sjálfboðaliði hjá Rauða Krossinum og er að fara vinna verkefni sem gengur út á það að aðstoða innflutt ungmenni hér á Íslandi, frá 16 ára og upp úr. Ég er mjög spennt fyrir þessu.

Annars er bara leti dagur hjá okkur í dag, vídjógláp á náttfötunum. Enda má maður slaka á eftir að hafa vaknað kl. 5 alla vikuna.

En nú skora ég á ykkur hinar systurnar að blogga, það er eins og ég og Viktoría séu einu Bakkasysturnar á þessari síðu Joyful.

Kveðja

Gróa Rán


Til hamingju með afmælið Leifi

birthday16DSC02971Við óskum Leifa til hamingju með árin 36 (eða á maður að fara að hætta að telja!!!)

 

 

Kveðja Hrönn og Ásthildur

 

 

 

 

 


Ég er awesomeness!

Jahá! það er sko ekki hægt að segja neitt annað en að ég er AWESOMENESS!! allavega í dag ;) fyrir þá sem ekki vita er awesomeness svipað og einhver veiki, flensa, kvef, slappleiki eða þess háttar. Einkenni awesomeness er að maður veðrur óeðlilega duglegur. Ég hef greinilega nælt mér í þvílikt slæmt awesomeness því að ég var of dugleg í dag!

Byrjaði á að vakna hálf sjö til að skella mér í ræktina hálf átta. Púlaði þar til níu og fór svo uppí skóla að læra frönsku. Um ellefu leytið fór ég í stofukynningar! fyrir þá sem ekki vita hvað það þýðir þá labbaði ég í nánast allar stofurnar og auglýsti bæði leikfélagið og skóhlífadaganna. Í hádeginu var ég svo í skráningu á skóhlífadögnum. 13:20 fór ég í íslensku og svo eftir þann tíma tók ég frönskupróf. Beint eftir prófið skundaði ég í kringlunna og fór að vinna í Byggt og Búið til hálf sjö. Eftir það fór ég heim í breiðholt og eldaði súpu handa mér, Hrönn og Ásthildi. Síðan tók ég úr þvottavélinni og er núna í tíu mínútna pásu áður en ég fer að læra fyrir stærðfræðipróf.

Ef þetta er ekki dugnaður þá veit ég ekki hvað dugnaður er?!

- Viktoría


Höfundur

Bakkasystur
Bakkasystur
Systurnar sex og fylgilið....
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband