Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

jæja..er síðan að deyja út??

Sælar systur

Þar sem enginn hefur bloggað síðan ég bloggaði seinast þá ætla ég bara að blogga aftur!

Í gær fórum ég og Geiri á prjónanámskeið. Við erum bæði að prjóna trefil. Þegar ég spurði Geira fyrst hvort hann vildi koma með neitaði hann, en þegar hann frétti að það væri ókeypis bakkelsi frá Mosfellsbakarí þá var hann fljótur að skipta um skoðun Tounge.

Annars er ekkert mikið að gerast hjá mér...er bara í skólanum og gengur bara vel.

Það er hins vegar mikið í gangi hjá Geira, hann er að fara að taka þátt í Bítlasöngleik í FÁ, síðan fara tökur á stuttmyndinni Pleisinu að hefjast og svo er hann að fara á talsetningarnámskeið. Svo ætlar hann einnig að taka þátt í söngvakeppninni með 3 öðrum strákum. Nóg að gera hjá honum!

En ég fór í atvinnuviðtal um daginn á leikskólanum Marbakka sem er stutt frá Skólagerði í Kópavogi. Hún gat ekki lofað mér vinnu en líkurnar eru góðar. Ég fæ að vita meira í endan mars, byrjun apríl.

En meira er ekki í fréttum hjá mér Smile.

Nú skora ég á ykkur hinar að blogga!

 Kv. Gróa Rán

 


Hæhæ

Halló allir

Af mér er bara allt fínt að frétta. Er byrjuð í skólanum og líst mjög vel á komandi önn, er í 23 einingum Wink. Stefni að því að útskrifast jól 2009 en á eftir að athuga hvað ég á eftir af kjörsviði þannig að það kemur bara í ljós. Geiri fékk líka mjög fína stundartöflu.

Annars var ég að skella inn myndum af jól og áramótum hér á Bakka, endilega skoðið Smile.

En ég hef svo sem voða lítið að segja meira, ekkert mikið búið að gerast hjá mér það sem af er árinu. Ég blogga bara aftur þegar einhvað spennó er búið að gerast hjá mér.

Kv. Gróa Rán


!

Litla systir ykkar (nema þín Gróa ég verð ávallt STÓRA systir þín :) tókst í gær að lífga upp LEIKFÉLAG BORGARHOLTSSKÓLA ÍSLANDS! sem hefur verið í dái í þrjú ár. Frá því að ég byrjaði í menntaskóla hefur verið minn draumur að starfa í leikfélagi og þegar ég varð óvart formaður þessa önn ákvað ég að láta þann draum RÆTAST!

Langaði bara að deila þessum fréttum með ykkur :)

- Viktoría Formaður Leikfélags Borgarholtsskóla Íslands!

p.s. er ég eina sem blogga hér eða? ;P


2009?

Gleðilegt nýtt ár!  þar sem enginn tók að sér að blogga næst blogga ég bara aftur!
 hér er ég enn og aftur andvaka. Ég ætlaði að vera rosalega dugleg og snúa sólarhringnum við fyrir skólan..  skólinn byrjar ekki á morgun heldur hinn og enn er svefninn í rugli :P    þetta jólafrí fór alveg með mann!  En samt sem áður hefur þetta jólafrí verið yndislegt og nýja árið byrjar mjög vel :) 

Það helsta sem er á döfinni núna hjá mér í jan - feb er þetta:
  • skólinn að byrja aftur.. vúhú!  er með ostagötótta stundatöflu (er í fimm götum! =/  plús þá get ég sofið út til ellefu á mánudögum!  og til tíu á þriðjudögum og fimmtudögum :D )
     
  • ég er enn að vinna í byggt&búið  (partý á fimmtudögum milli sex og níu B&B Kringlunni - skilyrði að versla sér hlut(i) minnsta lagi að verðmæti 5000)
     
  • Ég er orðin formaður leikfélagsins í Borgó!  það var víst leikfélag fyrir minn tíma og frá því ég byrjaði í borgó hefur verið orðrómur um að rífa upp leikfélagið. Þegar fyrrverandi formaður okkar (agnes nokkur wild) útskrifaðist úr borgó og ég varð óvart formaður þá ákvað ég sanna þessa orðróma og lífga leikfélagið upp frá dauðum!
    Sá draumur fer að verða að veruleika því ég er mjög líklega næstum því pottþétt komin með leikstjóra! 
     
  • Ég er einnig að taka þátt í leikriti sem LM setur upp í Bæjarleikhúsinu :)  Mun auglýsa það betur nánar.  (hint: takið frá helgina 24-25 því þá verða sýningar - hentar fyrir alla leikhúsvæna aldurshópa)
     
  • Ég verð líka bráðum aðstoðarþjálfari á Dale Carnegie. Námskeiðið sem ég aðstoðaþjálfa á byrjar 14. jan og ég er orðin alltof spennt til að byrja.

Svo á ég víst líka fjölskyldu og vini og ég reyni að skipta mínum litla frítíma jafnt á milli þeirra.

Eins og staðan er núna virðist 2009 ætla verða geðveikt ár og hlakka ég til að takast á við öll þau verkefni sem bíða mín :D 

- Viktoría  


Höfundur

Bakkasystur
Bakkasystur
Systurnar sex og fylgilið....
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband