Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Annað sætið í ensku deildinni

B - lið

2. Enska deildin  - úrslit leikja

 Lau Ægir - Fram 1 - 4

 Lau UMFK - Þróttur 2 - 0

 Lau Reynir - Stjarnan1  2 - 5

Lau Ægir - UMFK 4 - 3

Lau Reynir - Þróttur 4 - 1

Lau Stjarnan1 - Fram 5 - 2

Lau Ægir - Reynir 0 - 3

Lau  UMFK - Fram 2 - 1

Lau Stjarnan1 - Þróttur 3 - 0

Lau Ægir - Stjarnan1  1 - 4

Lau UMFK - Reynir 2 - 1

Lau Þróttur - Fram 4 - 3

Sun Ægir - Þróttur 1 - 4

Sun UMFK - Stjarnan1  3 - 3

Sun Reynir - Fram 3 - 0

 

Það er aldrei skráð meira en þriggja marka munur.

Vor á Kjalarnesi

Það er langt síðan við höfum látið í ykkur heyra. Við fjölskyldan erum öll að komast í sumarfrí. Guðni Kristinn byrjaði 6. júní og fór í vinnumennsku upp á Bakka þangað til móðir hans hætti að vinna 13. júní. Hún þarf reyndar töluvert að vinna ennþá, bæði í Klébergsskóla og í ritgerðavinnu en það bíður eftir rigningadögum. Hrafnhildur Katrín fer í sumarfrí í mánaðarlok og verður í mánuð. Þangað til fer hún eitthvað í leiksskólann en er styttri dag og fær frídag öðruhvoru ef svo ber við.

Guðni Kristinn stundar æfingar af kappi en stórmót sumarsins er næstu helgi. Markmaðurinn er farinn að skutla sér fyrir boltann og nær að spyrna lengra út á völl í hverri æfingu. Hann og frændi hans eru að selja klósett pappír og eldhúsrúllur ef áhugasamir vilja styrkja UMFK - 7. flokk.

Verkefnalisti sumarsins er langur. Það verður ekki ferðast mikið en þess meira haldið sig heima við og kröftum safnað fyrir komandi vetur.

040608%20116  040608%20127

040608%20240  040608%20194

Ég fékk nokkrar myndir af Guðna Kristni og Viktori af heimasíðu Klébergsskóla. Þessar myndir voru teknar á tæknidögum og má sjá báta þeirra frændna. Einnig eru myndir úr óvissuferð.

Kveðja Bára


Afmælistímabil, vorið og sumarfrísplön

Spurning hvort að það sé ekki alveg að fara að verða kominn tími á blogg frá mér núna.

Afmælistímabilið mikla er heldur betur búið að vera skemmtilegt og nóg að gera hjá öllum fjölskyldumeðlimum. Viktor er á fullu á fótboltaæfingum fyrir stórmótið sem þeir Guðni eru að fara að keppa á 20-22 júní uppi á Skaga. Birna er voða ánægð með að vera orðin "teggja" ára þó að hún syngi fyrir sjálfa sig að hún sé "ÁTTA ára í dag". Leifi er farinn að vinna sjálfstætt sem allt-múligt-mann og hefur nóg að gera í því, auk þess sem hann þeytist um á enduro-hjólinu sínu út um allar trissur og er einmitt að plana 4 daga hjólaferð um Vestfirði næstu helgi. Það virðist sem allir mínir vinahópar séu að bralla eitthvað þessa dagana svo ég hef haft nóg að gera í grillveislum og matarboðum, svona á milli þess sem ég snæði kökur í afmælisveislum. 

Það er semsagt búið að vera nóg að gera hjá okkur. Ég vildi alveg hafa daginn aðeins lengri. Ég elska vorðið og sumarið og vildi að maður gæti lagst í hýði í mesta skammdeginu og sofið t.d. allan febrúar (sorrý febrúar-afmælisbörn). Þá gæti maður í staðinn vakið allan sólahringinn á þessum árstíma, svona frá því í lok apríl og fram í miðjan ágúst.

Framundan er eins og svona ein LONDON-ferð með stelpunum (eftir 10 daga) og svo förum við öll fjölskyldan í sumarfrí aðra vikuna í júlí. Þá er stefnan tekin norður í land þar sem við ætlum að eyða næstu 3 vikum í útilegum og fjallgöngum. Endum svo fríið á 4 daga gönguferð með gönguhópnum okkar um Fjörður og Flateyjardal.

Til hamingju með afmælisdaginn í dag mamma (Birna söng líka í morgun að þú værir átta ára)

Kveðja Dröfn og fjallapúkarnir


Til Hamingju með afmælið Mamma- amma

kveðja Hrönn og Ásthildur

20 ára afmælisbarn

Trúið þið því að þessi dama er orðin fullorðins.......scan0001

 

Enn innilega til hamingju með árin 20

kv. Hrönn og Ásthildur

 


Afmælisbarn

Til hamingju með afmælið

Birna Rún

afmdagur_10_04 (3)


Höfundur

Bakkasystur
Bakkasystur
Systurnar sex og fylgilið....
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband