Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Til hamingju með afmælið Gunnar

Til hamingju með 25 ára afmælið í gær Gunnar !

(eða var það ekki örugglega 25???)

Við vonum að þú hafir átt notalegan dag eða allavegna fengið væna kökusneið eða eitthvað gott að borða í tilefni dagsins.

Bestu afmæliskveðjur

Dröfn, Leifi, Viktor og Birna Rún


Loksins, loksins ....

... loksins er ég komin með bílpróf!! Grin

Kv. Gróa Rán


Meðgöngu-hugleiðingar.

Sælar systur og fleiri.

Ég var að skoða einhverja meðgöngu-síðu á netinu og ég er búin að komast að því afhverju mamma á bara stelpur.

Ég var að lesa um ýmis tákn sem gætu gefið til kynna hvort kyns barnið sé og þar stóð meðal annars að ef að móðirin þráir sætindi gefur það til kynna að barnið sé stelpa. Eins og þið vitið er móðir okkar algjör nammigrís og þessvegna á hún bara stelpur!

Ég er samt engu nær um hvors kyns mitt barn er þar sem að ég var ekki með morgunógleði sem gefur til kynna að barnið sé strákur, en svo sef ég á hægri hlið sem gefur til kynna að það sé stelpa. Ég á ekki fyrra barn þannig að ég get ekki séð það á því hvort fyrra barnið sagði pabbi eða mamma á undan. Sögðu Viktor og Guðni báðir mamma á undan? Ætli við höfum þá allar sagt mamma á undan? Nema kannksi Gróa og Viktoría það ætti ekki að skipta máli. 

Annars stendur að þetta séu bara þjóðsögur og alls ekki eigi að taka þessu sem læknisfræðilegum staðreyndum. OOoo ég sem hélt að ef ég horfði í spegil þá gæti ég pottþétt vitað hvors kyns barnið væri eftir því hvort sjáöldrin stækkuðu eða minnkuðu. Við förum í sónar 1. apríl.  

 kv. Halla                

 

                                                                 stelpastrakur

E.s. Daníel er með kenningu að ef að barnið kemur fyrir áætlaðann tíma og allt gengur hratt fyrir sig erfi það mína skapsmuni og óþolinmæði en ef það lætur bíða eftir sér verði það rólegt eins og hann.

TIl hamingju með Afmælið í gær

Hjartanlega til hamingju með afmælið Bára og Hrönn!

Vildi bara blogga afmælisblogg fyrir ykkur líka.

kv. Viktoría

 happy_birthday


tími á blogg?

Hæhæ :)

Ég ætla telja upp fyrir ykkur það sem ég hef verið að gera og það sem er framundan hjá mér.

 

  •   Þessi vika í skólanum er búin að vera frekar tjilluð. Á mánudaginn var bara venjulegur skóladagur fram að hádegi. Þá fór ég ásamt leiklistaráfanganum í Borgarleikhúsið og við fengum að skyggnast þar baksviðs. Reyndar hef ég séð það flest áður enda hef ég leikið á litla sviðinu í Borgarleikhúsinu! (Talandi um að eiga fræga systur!) En það var samt mjög gaman :)   þriðjudagurinn var svo bara venjulegur. Á miðvikudaginn byrjuðu svo Skóhlífadagarnir. Ég mætti í skólann klukkan 9 og fór þá á Evrópska kvikmyndahátíð en á henni horfði ég á Oliver Twist. Síðan klukkan eitt fór ég á forsýningu á Step up 2: The Streets. Á fimmtudaginn mætti ég svo 9 í skólann og fór á fyrirlestur um Vantrú. Mér fannst þetta mjög áhugaverður fyrirlestur, sérstaklega þar sem trúleysingjarnir sem héldu hann voru einmitt að tala um þá trú sem ég trúi. Ég hefði getað rökrætt endalaust við þá, en ákvað þó að halda aðeins aftur að mér. Það kom mér samt á óvart að þessi fyrirlestur dró ekkert úr trú minni, heldur styrkti hana enn frekar.
    Síðan um kvöldið var Glæsiballið. Ég ákvað að spara peningana og fann mér kjól úr fataskápnum, í stað þess að eyða fullt af pening í glæsilegan kjól. Samt sem áður var ég mjög glæsileg og ég skemmti mér konunglega :) Fyrir þá sem ekki vita er Glæsiballið vímuefnalaust ball þar sem nemendur koma saman í skólanum, borða góðan mat sem kennarar þjóna manni til borðs og horfa á skemmtiatriði. Veislustjórinn þetta árið var Björgvin Franz og var hann ótrúlega fyndinn. Eftir það fór ég svo heim og sit núna og blogga þetta blogg.
  • Það er sem framundan hjá mér er hinsvegar mjög svo skemmtilegt. Ef það hefur farið fram hjá ykkur þá er ég nefninlega á leiðinni til London! Ég fer aðfaranótt fimmtudags í NÆSTU viku. Semsagt eftir viku þá verð ég ótrúlega töff að upplifa þvílíka menningu í London. Ég er ekki alveg komin með fulla dagskrá í hendurnar en ég veit hins vegar að við förum allavega á þrjár leiksýningar. Við sjáum Wicked, Lion King og Spamelot. Svo munum við einnig skoða Globe, en það er leikhúsið þar sem hinn frægi William Shakespeare setti upp sín fyrstu verk. Einnig munum við fá tíma til að versla og hlakka ég mjög til að skoða búðirnar á Oxford Street. Ég kem svo aftur heim til Íslands seint á sunnudeginum.

en jæja klukkan er orðin margt.. er að hugsa um að reka þessa sætu ketti út úr herberginu mínu og fara að sofa.

Snúlla hefðarkisi

 

 

 

 

 

 

 

 

Viktoría


TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ DANÍEL !!!

Til hamingju með að vera orðinn fullorðins.

Vonandi átt þú eftir að njóta dagsins og kvöldsins í góðra vina hópi.

 

Kveðja Dröfn, Leifi, Viktor og Birna


Fréttir af okkur.

Sælar systur og fleiri.

Hér koma smá fréttir af okkur skötuhjúum.
Skólinn gengur bara vel og tónskólinn gengur vel hjá Daníel. Hann tekur 5. stigspróf í mars, svo er hann líka í samspili sem gengur líka vel.

Við erum komin langt með það að flytja og erum að reyna að klára þetta af.
Daníel verður svo tvítugur næsta laugardag.

Við fórum á Ivanov í leikhús um daginn og erum að fara á Brúðguman í bíó í kvöld.

Ég er byrjuð að vinna á föstudögum í garðinum, þannig að ég er á þá og aðra hvora helgi að vinna.
Hmm ég held að það sé ekkert meira að frétta....

Jú.. Ég þarf að komast uppá Akranes í ágúst. Er einhver til í að skutla mér??

kv. Halla og Daníel


Hitt og þetta

Sæl öll sömul

Mig langar til að byrja á að óska þessum manni til hamingju með afmælið 10 febrúar DSC01368

(ætlaði að skella inn mynd af honum þann 10 en biðst afsökunar á að vera 3 dögum of sein).

 

Síðan langar mig að minna systur mínar allavegna þær 3 yngstu að ég og Ásthildur erum í sundi alla mánudaga og miðvikudaga á milli 17:30 -18:30 og það væri mjög gaman að fá félagskap í 500-1000 metrunum og í pottinum á eftir. VIð erum reyndar ekki í sundi í dag.

Síðan vantar mig pössun mið. 20 febrúar klukkan 19:00 (væri fínt að byrja í sundi og passa svo), en við erum að fara í leikhús. og Síðan vantar mig pössun laugardaginn 22 mars sem er laugardagurinn fyrir páska og þá þarf að passa líklega 3 börn og byrja 9:30. (það verða kanski boðin páskaegg að launum).

kveðja Hrönn

 


Skemmtikvöld

Photobucket

 ATH!  Ekki ætlað börnum undir 14 ára aldri.


kominn tími á blogg frá mér...

Sælar systur og fleiri

Það er bara allt gott að frétta af mér. Ég átti að fara í verklega bílprófið núna í morgun en því var frestað vegna veðurs þannig að ég fer líklegast í það einhverntímann í næstu viku.

Geira gengur mjög vel í skólanum og hann er mjög ánægður þar, hann skilur ekki afhverju hann fór bara ekki þangar fyrst Wink. Hann fær mjög mikinn stuðning frá kennurum sem hann fékk ekki í MK sem er alveg frábært.

Annars er ekki mikið að frétta af okkur....við erum bara í skólanum og svo förum við í ræktina 2svar í viku...rosa dugleg Joyful.

En ég ætlaði bara að skella hér inn stuttu bloggi...bara láta vita að ég er enn á lífi...ég hitti ykkur systur svo sjaldan þar sem að ég er aldrei heima.

En þetta er nóg í bili...ég skal reyna að vera duglegri að blogga í framtíðinni.

Kv. Gróa Rán

 PS: Ég set hérna eina mynd..er bara að tékka hvort það virkar.

Gróa og Geiri


Næsta síða »

Höfundur

Bakkasystur
Bakkasystur
Systurnar sex og fylgilið....
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband