28.9.2007 | 10:24
Smá mont...
Litla systirin sem heldur að hún kunni ekkert í stærðfræði fékk 9 á fyrsta prófinu og var með þeim hæstu í bekknum *mont* .
En ég var að uppgötva í gær að laugardaginn 6. október verður það í fyrsta skipti sem að ég og Viktoría verðum ekki á sama stað á afmælinu okkar...og í fyrsta sinn sem að aðeins önnur verður heima! VB er að fara í bústað...og ég ætla að vera heima á Bakka en fer síðan út að borða um kvöldið . Ætlar ekki einhver að baka köku??
Kv. Gróa Rán
Athugasemdir
Ég ætla líka að vera uppá Bakka og er að hugsa um að prófa að gera trölladeig. Ég keypti trölladeigsbók í góða hirðinum á 50kall. Ef einhverjum langar að vera með. Ég get kannksi líka bakað köku.
Halla (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 18:44
já það verður skrýtið að eyða ekki afmælisdeginum saman...
en ég á nú eftir að hringja í þig..ábyggilega bara rétt eftir miðnætti :P
Viktoría (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 21:43
Já - ég vil nú samt ekki fá trölladeigsköku... en Gróa mín við getum nú ábyggilega hent í eina köku eða leiðbeint þér... Til hamingju með einkunina.. níur virðast vera að ganga innan fjölskyldunnar en þú hefur unnið fyrir henni.
Bára (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 14:12
Ég kann nú alveg að baka :) En takk takk ;)
Gróa Rán (IP-tala skráð) 30.9.2007 kl. 12:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.