15.2.2009 | 18:34
sunnudagur til sælu =)
Hæhæ
Héðan úr Kópavoginum er allt fínt að frétta. Geiri var að taka þátt í söngvakeppni á fimmtudaginn og vann ekki, enda meira gert upp á grínið en í alvöru . Hann er einnig búinn að vera á talsetningarnámskeiði sem honum finnst rosa skemmtilegt.
Við erum svo bæði á fullu í skólanum og gengur bara vel hjá okkur báðum, ég þarf reyndar að vera aðeins strangari í sambandi við andlitsbókina, gleymi mér aðeins of oft þar inn á þegar ég á að vera að fylgjast með í tímum . En ég og Geiri erum búin að vakna kl. 5 síðastliðna morgna og bera út fréttablaðið og hefur það gengið mjög vel fyrir utan síðasta laugardag en þá var svo mikil hálka að ég rann tvisvar á rassinn .
Í gær fórum við svo út að borða á Caruso í tilefni Valentínusardagsins og gaf Geiri mér mjög fallegt hálsmen en ég gaf honum vasapela .
Ég var svo að skrá mig sem sjálfboðaliði hjá Rauða Krossinum og er að fara vinna verkefni sem gengur út á það að aðstoða innflutt ungmenni hér á Íslandi, frá 16 ára og upp úr. Ég er mjög spennt fyrir þessu.
Annars er bara leti dagur hjá okkur í dag, vídjógláp á náttfötunum. Enda má maður slaka á eftir að hafa vaknað kl. 5 alla vikuna.
En nú skora ég á ykkur hinar systurnar að blogga, það er eins og ég og Viktoría séu einu Bakkasysturnar á þessari síðu .
Kveðja
Gróa Rán
Athugasemdir
Rosalega eruð þið dugleg. Flott hjá þér Gróa að gerast sjálfboðaliði!
Halla (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 23:11
Gaman að heyra frá ykkur! frábært hjá þér gróa með rauða krossinn! vil heyra allt um þetta næst þegar við hittumst :D
Viktoría (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 01:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.