Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
25.10.2008 | 20:27
Lestur
Það er gott að lestrarkunnátta sé að batna - en það þarf ennþá að styðja vel við lestur. Það er allt of margt sem lesturinn á í samkeppni við.
Lesa meira...
Eru góð í lestri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.10.2008 | 12:01
Kjalarnesgengið
Sælar
Ég sit núna í nýja sjónvarpsherberginu mínu og hugsa að ég verði hér það sem eftir er af deginum . Það er heldur betur búið að vera nóg að gera á þessum bænum síðasta mánuðinn. Ég fæ reglulega nágranna mína í heimssókn sem taka að sér að brjóta, byggja, sparsla, pússa, mála, sópa, þrífa, laga, bera húsgögn, passa börn, elda mat og margt margt fleira. Nágrannavarslan á Kjalarnesinu virkar vel á milli þessara tveggja húsa og virðist ég hafa fengið bónuspakka með mínum límmiðum.
Ég skellti mér til Skotlands í byrjun kreppu og náði að versla á genginu 295 kr. pundið. Alveg hreint þræl gaman en sem betur fer var lítill tími til að versla því að þetta var vinnuferð. Í þessari ferð fræddist ég og kynntist menningu Skotlands. Fór upp á hæðsta fjallið þeirra Ben Nevis sem er jafnframt hæðsta fjall Bretlands,
sá lengstu ána þeirra river Tay,
skoðaði bruggverksmiðju, fór í draugagöngu, lærði skoska dansa og sýndi frábæra takta í Krullu (erl. curling).
Við tókum svo einn dag í að skoða Edinborg, gengum að kastalanum þeirra og skoðuðum gamla bæinn. Skotland er eitt af þeim löndum sem mig langar aftur til að heimsækja.
Á meðan ég var í Skotlandi gengu framkvæmdir vel hér heima fyrir. Nágrannafjölskyldan sem varð helmingi stærri þessaviku stóð sig vel í að pússa og mála og sparsla og fleira og fengu aðstoð okkar eina bloggvinar (systur afhverju eigum við bara einn bloggvin??) Geira.
Síðustu helgi fór ég aftur út úr bænum en styttra í það skiptið - upp í Grímsnes þar sem Klessurnar, (saumaklúbburinn) fóru í sína árlegu sumarbústaðaferð. Á meðan á þeirri ferð stóð fékk ég enn eina frábæru heimssóknina og enn var málað, pússað, skúrað og þvottavélar tengdar. Staðan á framkvæmdum er sem sagt þessi að sjónvarpshol er tilbúið (fer ekki lengra með það í bili), þvottahúsið er tilbúið og svefnherbergi langt komið. Nú sit ég og klóra mér i höfði hvernig raða á í stofuna og hvernig lit á að velja á veggina. Það verður málað í vetrarfríinu.
Skólavinna hjá okkur fer vel af stað og eru allir fjölskyldumeðlimir ánægðir og standa sig vel á þeim vettvangi.
Góða helgi - kv. Bára
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.10.2008 | 21:03
Þórhalla Guðný og Halla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.10.2008 | 13:54
Frettir fra London
Hae Hae. Eg er komin til london og gekk ferdin vel. Thegar vid komum a hotelid var einhver i herberginu okkar svo ad a timabili i gaer hofdum vid ekkert herbergi til ad sofa i. En sem betur fer leystist thad og vid fengum herbergi. Eg er ad fara i leikhus i kvold a Vesalinganna, hef heyrt ad thetta se mjog sorglegt leikrit. Eg missti mig sma i budunum i dag, en aetla taka thvi adeins rolegara a morgun
Knus og kossar
Viktoria
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.10.2008 | 16:34
Fjölskyldufréttir
Sælar systur og fleiri.
Tími er kominn á smá fréttir frá litlu fjölskyldunni okkar. Þórhalla Guðný vex og dafnar mjög vel. Við fórum með hana í 6 vikna skoðun í dag og allt gekk rosalega vel. Þórhalla skoðaði lækninn alveg jafn mikið og hann skoðaði hana og hann talaði mikið um hvað hún væri rosalega mannaleg. Hjúkrunarfræðingnum fannst hún vera rosalega góð og fín stelpa. Þórhalla var voðalega róleg og góð og æsti sig eiginlega ekkert fyrr en við vorum að klæða hana aftur í fötin. Hún er semsagt orðin 4,6 kg og 55,5 sm.
Daníel fékk bara gott miðannarmat og fékk hæstu nemendaeinkunn af öllum (9,4) fyrir lokaverkefnið sitt úr Flugdrekahlauparanum og mjög góða umsögn en hann á eftir að einkunn frá kennaranum.
Ég er bara mjög hress og er loksins búin að ganga frá fötunum mínum í skápinn og færa Þórhöllu föt í kommóðuna. Ég er svo að fara að skrá mig í mömmuleikfimi tvisvar í viku sem byrjar 20 október.
Þið getið svo skoðað fullt af myndum inni á photobucket síðunni okkar:
http://photobucket.com/dannihalla
Síðast en ekki síst vil ég óska Gróu Rán og Viktoríu til hamingju með 18 ára afmælið í dag.
kv. Halla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)