21.3.2008 | 11:21
Föstudagurinn langi
Fallegur söngur í Brautarholtskirkju í dag. Félagar úr Karlakór Kjalnesinga. Slóðin er: http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4401503.
KVeðja Bára
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2008 | 22:59
Orðabók barnsins
Ég vil líka svona leggleg. Svona fínt, sagði litla snótin þegar hún sá mig klæða mig í legghlífar. Henni finnst þær flottar. Ég á eftir að athuga hvort að það fáist legghlífar á svona lítil kríli. Hún gæti verið í þeim þegar hún hoppar á trambambó en það er mjög vinsælt núna alveg eins og að borða kókóbums á morgnana sem er alveg pottrétt að klárast enda taka þau systkin vel til matar síns. Reyndar er það eldra barnið á heimilinu sem á pottrétt orðið. Litla krílið lítur mjög upp til stóra bróðurs þessa dagana og prumpar reglulega með höndinni og skiptir þá litlu í hvaða
aðstæðum við erum stödd. Það hefur samt ekki ollið mörgum vandræða augnablikum ekki eins og þegar fréttahákurinn minn kallaði til mín í sjoppu um daginn: "mamma helduru að þessi sé að spila svo mikið í spilakössum að hann getur ekki borgað húsið sitt".
Já það er mikið spáð í þjóðfélagsmál hér á þessum bæ og vonast hann eftir að sjá nýja risann á fasteignamarkaðinum sem getið var um í einni fyrirsögninni og vakti upp dálitla hræðsluspennu á heimilinu. En aftur að búkhljóðunum. Það nýjasta er gerviropi, þessi sem framkallast með því að kyngja smá lofti og ropa því svo upp og þegar það er búið þarf að segja paskafið.
Gleðilega páska og hafið það gott í fríinu.
Kveðja Bára
Bloggar | Breytt 19.3.2008 kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2008 | 19:55
spænsku tölunar upp í 4
uno doo þre hvadro
kv guðni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.3.2008 | 19:05
Athyglisvert
Mæður gallaðar, pabbar horfnir en gott að börnin séu nokkuð í lagi - þá hlýtur framtíðin að verða betri. Endurspegla barnabókmenntir tíðarandann?
kv. Báran
![]() |
Hættulegt líf mæðra í barnabókum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2008 | 00:05
Dracco, fótbolti og orðabók barnsins.
Nýjasta vinsældin á okkar heimili eru Dracco karlar (höfuð). Reyndar búnir að vera vinsælir lengi en þær aukist upp á síðkastið. Fyrir þá sem vita ekki hvað Dracco er má benda á síðuna www.dracco.com en hún er vinsælt lesefni um þessar mundir. Samkvæmt síðunni eru tegundirnar alls 40 (reyndar var mér sagt að 5 tegundir hefðu bæst við) og eru þeir mismunandi í lögum og sama tegund getur komið í mörgum litum. Þeir eru líka misalgengir og verðmætir að sama skapi. Stundum er nauðsynlegt að bítta þremur og fá bara einn í staðinn. Guðni Kristinn á orðið töluvert margar tegundir. Ef
ég dreg karl upp úr ísboxinu (hann á ekki Dracco tösku) þá getur hann sagt númerið án þess að þurfa að hugsa sig um. Ég á hins vegar aðeins eitt Dracco höfuð. Minn kallast einhyrningurinn og er númer 19 en hornið er samt smá saman að mást af honum og hugsa ég að hann verði framvegis númer eitt enda frumburðurinn á heimilinu.
Frumburðurinn hefur nú líka margt annað fyrir stafni þessa dagana. Hann hvetur móður sína óspart til að fara í leikfimi en hvatinn að henni er kanski ekki alveg heilsufar móðurinnar heldur er snáðinn að verða átta sem þýðir að hann má fara einn í sund og það er nýtt til hins ítrasta. Fótboltinn er annað áhugamál og spilar snáðinn í marki með UMFK. Þeir eru búnir að keppa á móti Víkingum, Þorlákshöfn, Hrunamönnum og Skagamönnum og eru bara nokkuð góðir og hafa ekki tapað leik ennþá.
Það er margt að gera hjá örverpinu þessa daga og vikur. Hún er sjaldan aðgerðalaus og bætast við ný orð daglega. Segja má að snótin sé altalandi en eitt og eitt orð þarfnast útskýringa. Kýrnar í fjósinu á Bakka misstu sig nú ekki og voru hinar rólegustu í mjöltunum. En þegar mjaltavélarnar skjótast sjálfvirkt af þeim má heyra í þeirri stuttu: "Sjáðu hún missti sig". Ef daman er svöng kemur fyrir að hún biður um rúkkurt en það þýðir jógúrt og er vinsæll matur á þessu heimili (já móðirin skrifar ritgerðir í stað eldamennskunnar) ef jógúrt er ekki til má alltaf biðja um klex. Það er ekki kex eins og ónefnd amma hélt heldur kornflex. Síjós er líka í uppáhaldi hjá henni á morgnana. Hún er stundum til í að fara í worlkarl í leikfimi þó svo að hún þurfi að vera í barnagæslunni á meðan.
Sjálfstæðisbaráttan er sterk um þessar mundir: Hún vill klæða sig sjálf, skipta á sér sjálf, og þvo sér sjálf (ekki samt hætta með bleiju), fara í bílstólinn sjálf og út úr bílnum sjálf, borða sjálf, bursta tennurnar sjálf, lesa sjálf, baða sig sjálf og brytja matinn sjálf. Hún telur líka að þegar sjálfstæði hennar eykst þá minnki það hjá móðurinni en hún vill hjálpa henni við flestar daglegar athafnir. Hérna mamma sokkarnir, settu svona, já svona upp, nei snúa þeim já svona og svo hinn gerðu eins, nei ekki svona snúa sokkunum, já fínt. Nei bídd þú, ég hneppa sko svona mamma þetta er fínt... ert þú í sturtu mamma bíddu hér er handklæðið,, já þurrka núna. Mamma farðu í þessa skó, hérna, jú víst þessa skó, hérna mamma ég finna þá. Ég brjóta þvottinn... ..
Bestu kveðjur Bára
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.3.2008 | 14:05
Ágúst kominn á skipulagið...
Það er mjög misjafnt hvað systur aðhafast í ágúst.. sumar fara á tónleika....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.2.2008 | 18:15
Til hamingju með afmælið Gunnar
Til hamingju með 25 ára afmælið í gær Gunnar !
(eða var það ekki örugglega 25???)
Við vonum að þú hafir átt notalegan dag eða allavegna fengið væna kökusneið eða eitthvað gott að borða í tilefni dagsins.
Bestu afmæliskveðjur
Dröfn, Leifi, Viktor og Birna Rún
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.2.2008 | 10:15
Loksins, loksins ....
... loksins er ég komin með bílpróf!!
Kv. Gróa Rán
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.2.2008 | 10:03
Meðgöngu-hugleiðingar.
Sælar systur og fleiri.
Ég var að skoða einhverja meðgöngu-síðu á netinu og ég er búin að komast að því afhverju mamma á bara stelpur.
Ég var að lesa um ýmis tákn sem gætu gefið til kynna hvort kyns barnið sé og þar stóð meðal annars að ef að móðirin þráir sætindi gefur það til kynna að barnið sé stelpa. Eins og þið vitið er móðir okkar algjör nammigrís og þessvegna á hún bara stelpur!
Ég er samt engu nær um hvors kyns mitt barn er þar sem að ég var ekki með morgunógleði sem gefur til kynna að barnið sé strákur, en svo sef ég á hægri hlið sem gefur til kynna að það sé stelpa. Ég á ekki fyrra barn þannig að ég get ekki séð það á því hvort fyrra barnið sagði pabbi eða mamma á undan. Sögðu Viktor og Guðni báðir mamma á undan? Ætli við höfum þá allar sagt mamma á undan? Nema kannksi Gróa og Viktoría það ætti ekki að skipta máli.
Annars stendur að þetta séu bara þjóðsögur og alls ekki eigi að taka þessu sem læknisfræðilegum staðreyndum. OOoo ég sem hélt að ef ég horfði í spegil þá gæti ég pottþétt vitað hvors kyns barnið væri eftir því hvort sjáöldrin stækkuðu eða minnkuðu. Við förum í sónar 1. apríl.
kv. Halla
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.2.2008 | 12:47
TIl hamingju með Afmælið í gær
Hjartanlega til hamingju með afmælið Bára og Hrönn!
Vildi bara blogga afmælisblogg fyrir ykkur líka.
kv. Viktoría
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)