21.1.2009 | 10:45
jæja..er síðan að deyja út??
Sælar systur
Þar sem enginn hefur bloggað síðan ég bloggaði seinast þá ætla ég bara að blogga aftur!
Í gær fórum ég og Geiri á prjónanámskeið. Við erum bæði að prjóna trefil. Þegar ég spurði Geira fyrst hvort hann vildi koma með neitaði hann, en þegar hann frétti að það væri ókeypis bakkelsi frá Mosfellsbakarí þá var hann fljótur að skipta um skoðun .
Annars er ekkert mikið að gerast hjá mér...er bara í skólanum og gengur bara vel.
Það er hins vegar mikið í gangi hjá Geira, hann er að fara að taka þátt í Bítlasöngleik í FÁ, síðan fara tökur á stuttmyndinni Pleisinu að hefjast og svo er hann að fara á talsetningarnámskeið. Svo ætlar hann einnig að taka þátt í söngvakeppninni með 3 öðrum strákum. Nóg að gera hjá honum!
En ég fór í atvinnuviðtal um daginn á leikskólanum Marbakka sem er stutt frá Skólagerði í Kópavogi. Hún gat ekki lofað mér vinnu en líkurnar eru góðar. Ég fæ að vita meira í endan mars, byrjun apríl.
En meira er ekki í fréttum hjá mér .
Nú skora ég á ykkur hinar að blogga!
Kv. Gróa Rán
Athugasemdir
frábært :)
ég ætla ekki að blogga næst því ég var búin að blogga þrisvar sinnum á undan þér :P
Skora á hinar að blogga !
Viktoría (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 12:14
Gaman að þið skulið hafa drifið ykkur á prjónanámskeið (þó að sumir ætli sér að borða meira enn prjóna - en ég geri það í saumaklúbbum)
Maður hlakkar til að fá að sjá Geira á fleiri stöðum en í áramótaskaupinu.... gaman að vera í þessu.
kv. Hrönn
Hrönn (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 18:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.